Fćrsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.6.2009 | 23:01
DALAI LAMA OG KÍNVERSKA TÍGRISDÝRIĐ
Erfitt ađ ráđa viđ ţennan mann. Mann sem eignast bara fleiri og fleiri vini.
MEđ ţví ađ brosa og hlćja.
Og vera forvitinn á furđur heimsins.
Ţađ er eitthvađ svo undurfurđulegt viđ hann.
Sendiherrann hleypur heim. Kínverska skrímsliđ hvćsir.
Ráđherrar fara í felur, flýja land.
En líklega breytir ţađ ekki Dalai Lama.
Hann heldur áfram ađ benda okkur á furđur heimsins.
Og fá okkur til ađ hugsa.
Viđ ţurfum ekki ađ vera sammála honum.
En viđ viljum líka fá ađ upplifa furđur heimsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 16:50
TÓNLIST TRYLLIR SÁLINA
Ég ćtlađi ađ skrifa eitt hvađ stórmerkilegt í dag. Stjórnmál dćgurmál. En hvađ á ég ađ skrifa um?
Baugsmáliđ? Jón Ásgeir flúinn úr landi. Klámhátíđin.Villi Ţ og Geir Hilmar verđa veislustjórar. Ökuníđinga? Ég á bara reiđhjól.
Nei ţađ verđur bara tónlist. Ég er alćta á tónlist, klassík, nútímatónlist, Rokk, Djass.
Nú er ég ađ hlusta á sćnska hljómsveit međ hinu skrýtna nafni Moneybrother og platan heitir Pengabrorsan. Ţessi hljómsveit sem er eiginlega bara einn mađur Anders Wendin hefur gefiđ út tvo diska á ensku Blood Panic og To die alone og svo ţriđja diskinn fyrsnefnda á sćnsku. Tónlistin er blanda af rokki pönki og sól. Stundum eins og Springsteen á fyrstu plötunum. En samt eitthvađ sćnskt, eins og Michael Wiehe, Totta Neslund, Ulf Lundell eđa ELdkvarn. Einhver sćnskur blćr. Nýi diskurinn er međ ábreiđum, Tom Waites, McColl, Steve Forbert eitthvađ óvćnt og skemmtilegt.
Hćgt er ađ panta sćnska diska frá www.Bengans.se eđa www.CdWow.se . Ef mađur á greiđslukort.
Fór í óperuna og sá óperu Stravinskys sem hefur fengiđ hiđ fáránlega nafn Flagari í framsókn!! Ţvílík smekkleysa. Er veriđ ađ tala um Jóns Sigurđsson??? Nafniđ hefđi átt ađ vera För flagarans eins og För Pílagrímsins eftir John Bunyan sem er veriđ ađ vísa til. En ţađ var söguflokkur um siđabót og trúarlega mannbćtandi lífsţćtti. Auden og Kollman byggja á ţessari hefđ í sögunni. Sveitastrákur lendir í spillingu og siđleysi en hjá höfundunum verđur engin siđabót heldur lendir Sakleysinginn á geđveikrahćli.
Mér heyrist ađ ţessi sýning hafi fengiđ misjafna dóma. En látiđ ekki hrćđa ykkur frá henni. Ţessi sýning hefur marga kosti, tónlistin góđ, Gunnar GUđbjörnsson, sem hefur alltaf fariđ í taugarnar á mér, er gríđargóđur hérna sem og ađrir söngvarar. Ég var ađ vísu orđinn svolítiđ ţreyttur í hálftíma fyrir hlé en ţađ var út afţví ađ ég mátti ekki vera ađ ţví ađ borđa kvöldmat. En eftir hlé varđ dramađ sífellt meira og sýningin áhrifameiri.
Drífiđ ykkur og látiđ ekki halda ykkur heima af misgóđum gagnrýnendum. Stravinský rjúlar.....
Myndir: Stravinsky, Moneybrother, Gönguslóđ á Seltjarnarnesi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.2.2007 kl. 16:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2007 | 14:51
FJAĐRAFOK HEIMSÓSÓMI OG HRÓS
Aftur hefur forsćtisráđherrann orđiđ sér til skammar. Kvenfyrirlitning og dónaskapur er hans deild. http://www.truno.blog.is/blog/truno/entry/121103/ Geir Hilmar, til hamingju.
Frambođslikstar vinstri grćnna hafa veriđ birtir fyrir Reykjavíkusvćđiđ stóra. Góđir listar. Dóttir mín er í ţriđja sćti í R. suđur. Ţar af leiđandi: Góđur listi. Steypum ríkisstjórninni kjósum vg og samfylkingu.
Hannes Hólmsteinn flutti fyrirlestur um gerđ heimildarmynda. Guđ hjálpi okkur. Lesiđ ágćtan stúf Ţorsteins Helgasonar á gammabrekka@hi.is.
Brjálćđi mánađarins. Keypti heildarsafn já ég meina heildarsafn Bachs á Amazon rúmlega 150 diska á skidogingenting. Hollenskir og belgískir flytjendur. Ég er farinn ađ undirbúa ellina, Bach í 2 tíma á dag. Glen Gould í sjónvarpinu, tveir ţćttir. Heimur batnandi.
11.2.2007 | 12:56
Er allt í lagi ađ eyđa opinberum skjölum
Ţađ virđist vera í lagi ađ eyđa skjölum í kringum sig. Ţađ var bara gert. Enginn virđist hafa áhyggjur af ţví. Hver er ábyrgur? Ţađ er aukaatriđiđ. Hverjir eru lögbrjótarnir? Skiptir engu máli. Öđru vísi vćri litiđ á ţađ í Bandaríkjunum. Svona er Ísland.